Á fundi Norrænu ráðherranefndarinnar í Reykjavík í nóvember sl. ræddu menningarmálaráðherrar Vestur- Norðurlanda, Katrín Jakobsdóttir frá Íslandi, Mimi Karlsen frá Grænlandi og Helena Dam á Neystabø frá Færeyjum um nánara samstarf á menningarsviðinu á svæðinu. Ráðherrarnir undirrituðu samkomulag sem nær yfir framlög til þriggja eftirfarandi sviða:.
2012: Menntun sem styður sjálfbæra þróun – tækifæri til óformlegrar menntunar.
2013: Framkvæmda og nýsköpunar á jaðarsvæðum.
2014: Mannaskiptaverkefni fyrir listamenn og starfsfólk á menningarsviði.
Nánar: Mmr.fo