– Til þess að byggja sjálfbært velferðarsamfélag er þörf fyrir uppfært atvinnulíf þar sem allir hafa tækifæri sem og launþegum sem búa yfir réttri hæfni. Þess vegna eru þekking, hæfni og aðlögun meðal þeirra sviða sem ríkisstjórnin telur mikilvægust. Og okkur þarf að verða ágengt á öllum þremur. Með því að sameina öflug fagsvið Hæfnistofnunarinnar Kompetanse Norge og menntamálaráðuneytisins verður unnt að veita öllum íbúum landsins aðgang að góðri, stafrænni og gjaldfrjálsri ráðgjafaþjónustu. Tromsø verður höfuðmiðstöð hæfniþróunar og aðlögunar, sagði Jan Tore Sanner.
Umdæmisskrifstofan á að leika meginhlutverkið í þróun og eflingu náms- og starfsráðgjafar í Noregi og verður meðal annars falið að þróa stafræna ráðgjafaþjónustu. Þróunin á að vera í nánu samstarfi við nýja menntamálaráðuneytið.
Heimild: Hæfnistofnunin Kompetanse Norge