NVL gefur reglulega út skýrslur með kynningu á kortlagningum, samanburðargreiningum, ráðleggingum, nýjum lausnum, samantektum og fleira á breiðu sviði fullorðinsfræðslu á Norðurlöndunum. Í skýrslunum er verðmæt þekking fyrir þá sem starfa við fræðslu fullorðinna og NVL vil gjarnan efla útbreiðslu þekkingarinnar.
Einblöðungunum er ætlað að miðla á auðskiljanlegan og samanþjappaðan hátt mikilvægustu eða handbærustu atriðunum til þín, sem hefur þörf fyrir snögga kynningu. Á einblöðungnum verður alltaf krækja í skýrsluna svo áhugasamir lesendur geta auðveldlega nálgast nánari upplýsingar.
Fyrsti einblöðungurinn hefur þegar verið birtur og fleiri munu fylgja í kjölfarið. Þann fyrsta má nálgast hér.