Markmið skýrslunnar er að hvetja til þess að norrænu þjóðirnar móti sér stefnu um færniþróun og færniþróunarpólitík sem er heildræn og einkennist af samstarfi og samvinnu á milli allra sviða sem málefnið varðar og sem veitir tækifæri til að koma á öflugu kerfi fyrir færniþjálfun og þróun í og fyrir atvinnulífið. Brýnt er að finna jafnvægi á milli markaðsaflanna og stýringu yfirvalda, á milli þróttar atvinnulífsins og getu menntastofnanna og hefða á milli færniþarfa atvinnulífsins og frjálsræði einstaklinganna til þess að þróa hæfileika sína.
Á árinu 2017 hefur netið kynnt skýrsluna með kynningaför á Norðurlöndum; í Noregi, Osló 29. mars, á Færeyjum í Þórshöfn - 20 apríl, á Íslandi í Reykjavik - 8. júní, í Finnlandi í Jakobstad 22. Nóvember og í Danmörku í Kaupmannahöfn 7. desember.
Meira