Fræðslumiðstöð atvinnulífsins í samstarfi við NVL, Norræna tengslanetið um nám fullorðinna, bjóða til ársfundar sem haldinn verður 14. nóvember n.k. í Háteig á Grand Hótel kl. 11:00 – 13:45. Boðið verður upp á léttar hádegisveitingar. Fundinum verður einnig streymt.
Á Íslandi stendur yfir heildarendurskoðun á framhaldsfræðslu og lögum um framhaldsfræðslu. Tilefni fundarins er því stefnumótun í tengslum við færniuppbyggingu fullorðinna, að eiga samtal og miðla reynslu. Staða og helstu áherslur heildarendurskoðunar á framhaldsfræðslu verður kynnt af formanni samstarfshópsins á fundinum, Berglindi Rós Magnúsdóttur, prófessor hjá Háskóla Íslands.
Einnig fáum við innsýn í stöðu mála varðandi innleiðingu verkfæra tengda færniuppbyggingu og núverandi áskorana hjá nágrannalöndum okkar, Noregi og Svíþjóð:
- Anna Kahlson, ráðgjafi færniþróunar og símenntunar hjá sænsku yfirvöldunum fyrir fagháskólastigið, fer yfir stöðu færniþróunar og innleiðingu verkfæra í Svíþjóð.
- Elisabeth Bøe, ráðgjafi í deild HK-dir fyrir færniþróun í atvinnulífinu, kynnir stöðu innleiðingar aðferða og helstu verkfæri tengd hæfnistefnu í Noregi.
Eftir hádegishlé verða pallborðsumræður með hagsmunaaðilum, og fyrirmyndir í námi fullorðinna taka á móti viðurkenningu.
Skráning fer fram hér að neðan.
Fyrirspurnir sendist á fjola@frae.is
RIG PÅ ERFARING – Lad os lære af hinanden
Det årlige seminar hos FA, Arbejdslivets oplæringscenter i Island, afholdes i samarbejde med NVL på Grand Hotel i Reykjavik tirsdag 14. november kl. 11-13:45 UTC. Mødet bliver også livestreamet.
I regeringspagten i Island opfordres der til en revision af lovgivningen om voksenuddannelse i et bredt samarbejde mellem forskellige aktører. Formålet med mødet er at dele erfaringer og skabe samtale angående kompetenceopbygning af voksne og vejen frem.
Sprog: Primært på Islandsk. Anna Kahlson fra MYH (Myndigheten för yrkeshögskolan i Sverige) og Elisabeth Bøe fra HK-dir (Direktoratet for høyere utdanning og kompetanse i Norge) afholder deres oplæg på engelsk.
Se dagsorden her
Henvendelser sendes til fjola@frae.is