Ný ríkisstjórn í Danmörku og aðilar vinnumarkaðarins hafa ákveðið að framlengja samninginn til að efla framkvæmd fyrri átaksverkefna eins og „Einn inngangur“.
Samningurinn felur í sér að 342,6 milljónum danskra króna verður varið til fullorðins- og símenntunar árið 2023. Samkvæmt samningnum á meðal annars að ræða um nýtt líkan fyrir útboðslotur um vinnumarkaðsnám (d. arbeidsmarkedsuddannelse. AMU) og að lög um að útboðslotur skuli fara fram á 4 ára fresti falli úr gildi og að haldið verði áfram að veita aukinn stuðning við nemendur sem sækja sér endurmenntun árið 2023.
Nánar
- Samningur um eins árs framlengingu þríhliða samkomulags um eflingu fullorðins-, sí- og endurmenntunar til 2023 Samningur um eins árs framlengingu þríhliða samkomulags um eflingu fullorðins-, sí- og endurmenntunar til 2023 (2018-2022) (bm.dk)
- Ný lög framlengja þríhliða samkomulag um eflingu fullorðins-, sí- og endurmenntunar