Færniþróun
Nyheder
Fáðu yfirlit yfir nýjasta efni frá neti NVL um stafvæðingu í atvinnulífinu
Ný norræn skýrsla lýsir eftir aukinni miðlun reynslu í því skini að símenntun stuðli í auknum mæli að því að mæta færniþörf framtíðarinnar á vinnumarkaði.
Fleirum verður að vera kleift að stunda nám samhliða vinnu. Norska ríkisstjórnin leggur því fram tillögur um breytingar á lögum um námsstuðning.
Í nýrri skýrslu kemur fram að bæði upplýsingar og fjárhagsstuðningur eru mikilvægir þættir í hvatningu faglærðs starfsfólks til að afla sér endur- eða símenntunar.
Norðurlandaráð bauð til ráðstefnu undir fyrirsögninni Leit Norðurlanda að faglærðu vinnuafli (n. Nordens jagt på faglært arbeidskraft) til að kynna skýrsluna Etirsóknarvert starfsnám á Norðurlöndum (d. Attraktive erhversuddannesler i Norden).
Stofnun æðri menntunar og færni (n Direktorat for høyere utdanning og kompetanse, HK-dir) veitir 100 milljónum norskra króna til tæplega 1.400 námskeiða í gegnum styrkjakerfið Hæfniplús (n. Kompetansepluss).
BIC-verkefnið hefur birt skýrslu með niðurstöðum verkefnisins; Námstilraunastofa – Aðferð til þess að virkja sköpunargáfu bæði stjórnenda og starfsfólks (d. Learning Labs – En metode til mobilisering af innovationsevnen hos ledere og medarbejdere).
Stofnun æðri menntunar og færni í Noregi (HK-dir) hefur úthlutað 94 milljóna norskra króna til hæfniþróunar í 11 atvinnugreinum.
Skortur á fólki með rétta hæfni bitnar á velferðarsviðinu, atvinnulífinu og viðbrögðum við loftlagsbreytingum.
Námsstyrkur vegna umbreytinga er nýr námsstyrkur sem er hluti af breytingaáætlun sænsku ríkisstjórnarinnar og er sérstaklega ætlaður þeim sem þurfa að breyta um starf eða efla hæfni sína til þess að öðlast sterkari stöðu á vinnumarkaði.
Norska hæfniþarfaráðið birti þriðjudaginn 14. júní sl. skýrsluna „Fagnám á háskólastigi fyrir atvinnulíf undirorpið breytingum (n. Høyere yrkesfaglig utdanning for et arbeidsliv i endring)“.
Verkefnið er hagnýtt og veitir innblástur og hugleiðingar um það ráðgjafarsvið er varðar ráðgjöf um þróun starfsferils fyrir fullorðna. Verkefninu fylgir kynning á hagnýtum verkfærum fyrir ráðgjafa sem vinna með fullorðna á vinnumarkaði og sem hægt er að nálgast á aðgengilegan og auðveldan hátt.